1 Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
1.1 Löggjöf
Bálkar Miðlun ehf, hér eftir ISX, starfar samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti
og fjármögnun hryðjuverka með síðari breytingum. ISX er skylt að framkvæma
áreiðanleikakönnun á viðskiptavini, m.a. við stofnun viðskiptasambands, reglubundið eftirlit
og/eða vegna einstakra viðskipta. Til að framkvæma áreiðanleikakönnun óskar ISX m.a. eftir
persónuupplýsingum um viðskiptavin, t.d. nafni, kennitölu, lögheimili, starfsheiti/stöðu,
símanúmeri, netfangi, fæðingarstað og ríkisfangi, auk fjárhagslegra upplýsinga. Lögaðilar
skulu veita upplýsingar um nafn, kennitölu, lögheimili, lagalegt form, upplýsingar um
stjórn,
framkvæmdastjórn og prókúruhafa, sem og upplýsingar um raunverulega eigendur
lögaðilans og hverjir hafi heimildir til að skuldbinda lögaðilann. ISX aflar jafnframt
upplýsinga
um uppruna þeirra fjármuna sem viðskiptavinur hyggst nota í viðskiptum hjá ISX, hvort
viðskipti fari fram fyrir hönd þriðja aðila og upplýsinga um eðli og tilgang fyrirhugaðs
viðskiptasambands og/eða viðskipta.
1.2 Áreiðanleikakönnun
Við áreiðanleikakönnun skal viðskiptavinur sanna á sér deili með framvísun gildra
persónuskilríkja sem eru gefin út eða viðurkennd af stjórnvöldum, t.d. vegabréf,
ökuskírteini, nafnskírteini eða fullgild rafræn skilríki. Eigi ólögráða viðskiptavinur ekki
gild
persónuskilríki getur lögráðamaður framvísað eigin persónuskilríkjum. Ef stofnað er til
viðskiptasambands fyrir hönd lögaðila, fjárvörslusjóða og sambærilegra aðila þurfa allir
stjórnarmenn, framkvæmdastjóri/-ar, prókúruhafar og raunverulegir eigendur lögaðilans að
sanna á sér deili með fullgildum persónuskilríkjum. Sama á við um alla eigendur í húsfélagi
þegar eignarhlutar í viðkomandi fjöleignarhúsi eru sex eða færri. Lögaðilar sanna á sér
deili
með því að framvísa vottorði úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra eða sambærilegri opinberri
skrá sem sannar skráningu viðkomandi lögaðila. Metið er hverju sinni hvort krafist er afrits
af samþykktum lögaðila og/eða endurskoðuðum ársreikningi.
1.3 Eftirlit
ISX hefur áhættumiðað eftirlit með samningssambandi við viðskiptavin og aflar uppfærðra
upplýsinga þegar þörf er á, hvenær sem er meðan á samningssambandi stendur. ISX ber auk
framangreinds að kanna sérstaklega áreiðanleika viðskiptavina sinna við ákveðnar aðstæður
þar sem sérstakrar varúðar er þörf. Í slíkum tilvikum áskilur ISX sér rétt til að kalla
eftir
viðbótargögnum, þ.m.t. persónuupplýsingum, um viðskiptavin til þess að framkvæma aukna
áreiðanleikakönnun. Gruni ISX að fjármunir þeir sem ætlun viðskiptavinar stendur til að fari
um kerfi ISX séu ágóði af ólögmætri háttsemi og/eða tengist fjármögnun hryðjuverka áskilur
ISX sér allan rétt til að stöðva umbeðin viðskipti án fyrirvara. Hafi ISX rökstuddan grun
eða
réttmæta ástæðu til að ætla að viðskipti séu grunsamleg með tilliti til peningaþvættis
og/eða fjármögnunar hryðjuverka er ISX skylt að tilkynna viðskiptin til skrifstofu
fjármálagreininga lögreglu og láta henni í té allar nauðsynlegar upplýsingar vegna
tilkynningarinnar. Viðskiptavini ber skylda til að láta ISX vita verði einhverjar breytingar
á
þeim upplýsingum sem ISX voru látnar í té við gerð áreiðanleikakönnunar.